Damdaramm

já allt búið að vera á fullu hjá mér að "taka til" fyrir ferminguna er ekki búin að vera alveg nógu dugleg að blogga ... ég er bara búin að hafa svo lítinn tíma eða þannig. Já en semsagt ég fór áðan upp í kirkju og það vavr einhver æfing fyrir ferminguna og við erum níu sem fermumst á sunnudaginn. Nenni ekki að skrifa meira er orðin alltof þreytt. Sjáumst öll hress og kát. :P

Jamm og já...

er hérna í tölvunni að hlusta á tónlist og datt í hug að fara að blogga en ég er ekki búin að gera það í tvo daga eða eitthvað en ég hef afsökun því ég komst ekki inná þetta í gær eða fyrradag svo var ég í Reykjavík í allan dag og komst ekki í snertingu við neina tölvu! En já ég var í klippingu í bænum og svo þurfti ég að fara í fermingarmyndatöku sem var grútleiðinlegt en já... svo eftir myndatökuna fórum við á Ruby TuesDay og fengum okkur alltof mikið að borða svo við vorum alveg að springa. Já gaman hjá okkur(Ég, Hulda, Mamma, Sonja og Sóley) í dag.Hlæjandi

Síðasti dagurinn

Páskafríið er að klárast og ég hlakka ekki til, en til að tala um eitthvað "skemmtilegra" þá fór ég út að skokka með Mörtu og Silju svo fórum við í Kósý og fengum okkur ís. Svo fórum ég og Silja að ná í hjól heim til ömmu og hjóluðum eitthvað lengst út í buska og aftur heim svo núna er ég bara búin að vera að horfa á Simpsons og lesa myndbönd mánaðarins. Ekkert viðburðaríkt sem ég hef að segja frá. Svo ég segi þetta gott í dag.

Páskadagur

Loksins koma svo þessir páskar sem allir eru að tala um... ég þurfti að vakna eldsnemma og fara í messu! Það var ekki gaman, Silja... þú bjargaðir mér fjúff. En svo þegar ég fór heim var borðað svín og ég hellti fullt af sósu á mig, svo nenntu pabbi og mamma ekki að fela páskaeggin svo ég faldi mörtu og hún faldi mitt. Ég setti hennar uppá háaloft og hún var 7 klst að leita af því MUHAHAHAHA!!! En hún faldi mitt bara í einthverjum morgunkornspakka þannig að ég fann það "strax" ... ok ég fann það allavega á undan henni. En núna þarf ég að farað éta það sjáumst lesendur

 Gubba Soff Magg


Hahaha klassík

1. Fara drulluhægt niður rennibrautina og syngdu strumpalagið á leiðinni og öskraðu svo þegar þú kemur út í vatnið eins og það hafi komið þér á óvart að rennibrautin væri búin og það væri vatn við endan á henni.


2. Farðu í laugina í froskalöppum, sundbol (asnalegum) og með risastór sundgleraugu og láttu eins og þú sért hrædd/ur við vatnið.

3. Farðu á sundbrautina (helst þar sem einhver er) og farðu nokkrar ferðir og syntu hundasund.
4. Öskraðu "kúkur í lauginni, kúkur í lauginni" og hlauptu uppúr og í sturtu.
5. Skrúfaðu frá öllum sturtunum og syngdu "mér finnst rigningin góð" og hlauptu milli sturtnanna (þótt að einhver sé að nota hana).
6. Stökktu alltaf ofaní heitu pottan, og öskraðu "BOMBA"!!
 
7. Halltu dyrunum á gufuni opnum ....
8. Biddu um að ræsa sveppinn, hlauptu í kringum hann og öskraðu "ég er æðstistrumpur, ég er æðstistrumpur"!!
9. Mættu með bók, sestu með hana í heitapottinn og lestu upphátt.


Jamm, namm laugardagur....

Eins og venjulega var ekkert að gera í dag nema að það var skroppið á Blómsturvelli að skoða skó(!) Síðan fórum við í bakaríið og fengum okkur helling í kaffitíma :) Svo núna er ég hér að skrifa þessa færslu ...

Dagurinn í dag...

það var þvílíkt stuð í dag (!).... horfði á 4 kvikmyndir og er að fara horfa á 5. var að klára risasjeik en langar í annan Ullandi  vildi að páskafríið væri lengra þó að ég sé alveg að drepast úr leiðindum hérna fyrir framan gamla kassann... það er bara að prófin eru að byrja og svona en annars held að ég sé búin að laga alla linkana  en ætla að bæta einhverju fleiru inná. Sjáumst svo.

Jæja best að byrja þetta...

Já þá er maður kominn formlega með bloggsíðu ég hélt að mogginn ætlaði aldrei að hefna sín á vísi en þei eru víst búnir að því núna :D Annars var ég áðan að spjalla við einhverja lúða sem eru að springa úr "lol" en ég verð samt að segja að ég var alveg að fíla það þó að ég hafi ekkert vitað hvað "manneskjurnar" væru að tala um ... segjum þetta gott í dag og ég þarf líka að fínpússa síðuna, Gemsinn

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband