Ef þú ert alltof vinsæl/ll

Rændu klósettsetunni.

Settu tannkrem á klósettsetuna.

Smurðu örlitlu vaselíni á alla bestu og dýrustu geisladiskana (mjög lítið svo það sjáist ekki).

Settu handsápu í örbylgjuofninn og stilltu á eina mínútu. Lyktin festist í öllum mat eftir það, sama hversu oft hann er þrifinn.

Taktu kexköku í sundur og settu pipar eða jalepeno á milli og fylgstu með þegar einhver fær sér bita.

Ef einhver sem er ekki á vinsældarlistanum sker sig bentu honum þá á að sítrónu safi sé það besta til að stöðva blæðingu. Forðaðu þér.

Settu smá rönd af vaselíni á klósettrúlluna og stráðu örlitlum pipar á röndina án þess að piparkornin sjáist. Fylgstu með næsta klósettgesti úr hæfilegri fjarlægð. Biddu til guðs að þú lendir aldrei í þessu.

Steldu fjarstýringunni, stattu fyrir utan stofugluggann, skiptu um stöð á 3ja sekúndna fresti og hækkaðu í botn.

Finndu stórar og ljótar nærbuxur af gamalli konu eða karli, merktu þær fórnarlambinu og skildu eftir á baðherberginu í partýi.

Klíndu vaselíni á alla spegla sem þú finnur. Vorkenndu þeim sem reynir að ná því af.

Hér þarf smá þolinmæði en er vel þess virði ef tekst vel. Hringdu á alla pípara, pítsusendla, sendibíla, rafvirkja, Herbalife sölumenn, húsmálara, og aðra sem eru líklegir til að koma á staðinn og vilja pening fyrir.  Gefðu öllum upp sama tíma og stað. Af 50 mæta kannski 20-25. Finndu þér gott sæti og horfðu á allt verða brjálað þegar allir vilja fá borgað.  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband