Helltu tíu pokum fullum af poppkorni í púströrið.
Troddu stórri kartöflu inn í púströrið.
Tjakkaðu bílinn upp á afturhjólunum (framhjólunum á framhjóladrifnum bílum...) en ekki svo hátt að það sjáist þegar fórnarlambið gengur að bílnum.
Smurðu vaselini á helstu gripfleti bílsins t.d. stýri, gírstöng hurðarhandfang og þess háttar.
Settu blek í rúðupissið. Stígðu aldrei uppí þennan bíl aftur.
Gleymdu súkkulaði á miðstöðvaropinu. Alveg óvart.
Límdu rúðuþurrkurnar fastar með tonnataki.
Festu fisk á kalt púströrið með vír.
Festu brauðsneið á vatnskassann. Nokkrum mínutum síðar kemur svartur reykur undan húddinu.
Helltu barnapúðri í miðstöðina. Stilltu á mesta blástur, settu útvarpið í botn og fylgstu með álengdar þegar bíllinn er settur í gang.
Troddu nokkrum sardínum niður í miðstöðina. Orsökin finnst ekki fyrr en allt mælaborðið hefur verið rifið af og lyktin löngu orðin hluti af bílnum.
Meginflokkur: Bull | Aukaflokkur: Bloggar | 17.4.2006 | 19:20 | Facebook